JENTAS Halldors ApS  

              
  Efst » Vörulisti          Skráning  |  Innkaupakarfa  |  Ganga frá pöntun   
Flokkar
Höfundar
Hraðleit
Viðskiptaskilmálar
Um okkur

Hafðu samband
Nýjar og væntanlegar bækur frá Jentas Nýjar og væntanlegar bækur frá Jentas
Neistaflug
Tracy Chevalier

Lundúnir 1792. Eftir að bróðir Jems deyr á æskuslóðunum í Dorsetskíri flyst fjölskyldan til borgarinnar. Þar kynnist Jem pörustúlkunni Maggý, sirkuslífinu í Lambeth og hinum seiðmagnaða nágranna sínum, skáldinu og róttæklingnum William Blake. Á meðan blóðugar fréttir berast yfir Ermasundið af byltingunni í Frakklandi takast Jem og Maggý á við andstæður sveitar og borgar, fátækt og ríkidæmi, gæfu og auðnuleysi og öllu því sem leynist á milli.

Í Neistaflugi galdrar Tracy Chevalier fram einstæða mynd af horfnum heimi, margbrotnum örlögum og vegferðinni frá bernsku til þroska. Hjartnæm saga eftir höfund metsölubókarinnar Stúlka með perlueyrnalokk.

TRACY CHEVALIER höfundur Neistaflugs er bandarísk og ólst upp í Washington, DC. Hún fluttist til Bretlands árið 1984 þar sem hún starfaði sem ritstjóri í mörg ár. Tracy er nú búsett í Lundúnum ásamt eiginmanni sínum og syni. Þekktust er Tracy fyrir bók sína Stúlku með perlueyrnalokk en sú bók hefur farið sigurför um heiminn og verið kvikmynduð með Scarlett Johansson og Colin Firth í aðalhlutverkum ásamt Tom Wilkinson í einu aukahlutverkanna. Myndin var tilnefnd til fjölda Óskars- og BAFTA- verðlauna 2004.

Allar eiga bækur hennar það sameiginlegt að byggja á sögulegum staðreyndum, oft tengdum listasögu, þar sem hún skáldar inn í eyður veraldarsögunnar og um tilurð þekktra listaverka. Tracy undirbýr sögur sínar af einstakri kostgæfni og les yfirleitt allt sem hönd á festir um viðfangsefni sitt áður en hún byrjar. Þessi natni hennar skilar sér í einstaklega lifandi lýsingum á staðháttum horfinna tíma og gerir frásagnir hennar svo myndrænar að lesandinn fær það á tilfinninguna að hann hafi sjálfur horft á umhverfið með eigin augum og orðið vitni að þeim atburðum sem lýst er.

Tracy hefur skrifað bækurnar:
- The Virgin Blue, 1997.
- Stúlka með perlueyrnalokk (Girl With a Pearl Earring), 1999. Íslensk útgáfa 2003.
- Fallen Angel, 2001.
- The Lady and the Unicorn, 2003.
- Neistaflug (Burning Bright), 2007. Íslensk útgáfa 2007.
- Í augnablikinu vinnur Tracy að bók sem hefur vinnuheitið She sells Seashells og er væntanleg 2009.

Viltu skrá þig inn?
Nýjar og væntanlegar bækur
Ísfólkið 21 - Um óttubil
Ísfólkið 21 - Um óttubil
1490,00 kr
Ísfólkið 20 - Hrafnsvængir
Ísfólkið 20 - Hrafnsvængir
1490,00 kr
Ísfólkið 19 - Tennur drekans
Ísfólkið 19 - Tennur drekans
1490,00 kr
Ísfólkið 18 - Gríman fellur
Ísfólkið 18 - Gríman fellur
1490,00 kr
Ísfólkið 17 - Garður dauðans
Ísfólkið 17 - Garður dauðans
1490,00 kr
Ísfólkið 16 - Alrúnin
Ísfólkið 16 - Alrúnin
1490,00 kr
Innkaupakarfa meira
0 bækur
Nýlegar bækur meira
Ísfólkið 19 - Tennur drekans
Ísfólkið 19 - Tennur drekans
1490,00 kr
Söluhæstu
01.Ísfólkið 01 - Álagafjötrar
02.Ísfólkið 02 - Nornaveiðar
03.Ísfólkið 04 - Vonin
04.Ísfólkið 03 - Hyldýpið
05.Ísfólkið 05 - Dauðasyndin
06.Ísfólkið 06 - Illur arfur
07.Ísfólkið 08 - Dóttir böðulsins
08.Ísfólkið 07 - Draugahöllin
09.Ísfólkið 09 - Einfarinn
10.Leyfðu mér að segja þér sögu...
Dómar meira
Engir dómar fundust
Gjaldmiðlar
Copyright © 2009 JENTAS
Powered by osCommerce